20.2.2012 | 15:07
Ertu í makaleit?
Ef þú ert einn af þeim sem ekki átt maka og felldir tár annaðhvort á konudegi eða bóndadegi, þá er ég algjörlega með lausnina handa þér. Hún felst hvorki í sálfræðitímum né deiti á öldurhúsum. Forfeður okkar voru með mun einfaldari lausn á þessum vanda, þeir notuðu lækningajurtir við öllu!
Ein af þeim jurtum sem var vinsæl í þessum tilgangi var vallhumall en hann vex allstaðar á landinu fyrir þá sem vilja tína hann í sumar og finna sér maka. Vallhumall þótti góður til að spá fyrir um örlög fólks og væri vallhumall settur undir kodda og eftirfarandi vísa höfð yfir átti það að kalla fram mynd af tilvonandi maka að morgni:
Thou pretty herb of Venus’ tree,Thy true name it is yarrow;
Now who my bosom friend must be,
Pray tell thou me to-morrow.
(Úr Halliwell’s Popular Rhymes)
Eins var það trú manna að seyði af vallhumli notað til andlitsþvotta eyddi hrukkum og ef vallhumall væri í brúðarvendi tryggði það hamingju í sjö ár. Á miðöldum var hefð fyrir því að brúðhjón bæru jurtina á sér til að tryggja langt og farsælt ástarlíf.
Burtséð frá ágæti vallhumals við makaleit þá er hann ákaflega fjölhæf lækningajurt sem á sér margra alda sögu í grasalækningum. Hann þykir t.d. góður til að stöðva blæðingar og græða sár, auka matarlyst og stöðva niðurgang. Eins er vallhumall afar gagnlegur gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og hita og er líka notaður til að koma reglu á tíðablæðingar og við tíðaverkjum. Svo er hann einnig talinn geta lækkað blóðþrýsting, dregið út bólgum og gigt ásamt því að vera vatnslosandi.
Anna Rósa grasalæknir er með heimasíðuna www.annarosa.is og á facebook hér
Heimildir: Bókin "Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir" sjá nánar hér
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2012 | 16:15
Sérdeilis kraftmikið kryddte
Mér finnst fátt betra í skammdeginu en að fá mér kryddte ættað frá Indlandi. Það er kallað „Chai te“ á vesturlöndum og er til í ótalmörgum útgáfum. Þetta te er alveg sérdeilis kröftugt og manni hlýnar niður í tær við það að drekka það. Ég er búin að drekka það nánast á hverjum degi í marga mánuði og hef sjaldan verið hressari! Yfirleitt fæ ég mér teið eftir kvöldmat því hunangið í því fullnægir sætuþörfinni og algjör óþarfi verður að fá sér eitthvað nasl um kvöldið. Stundum á ég það til að gera teið töluvert sterkara en í neðangreindri uppskrift og þá verð ég alveg tvöfalt hressari. Þótt ég drekki það á kvöldin heldur það samt ekki fyrir mér vöku, en einnig er mjög sniðugt að fá sér það á morgnanna.
Kardimommur, kanill, engifer, negull, pipar og múskat hafa öldum saman verið notaðar til lækninga og eiga það sammerkt að þykja góðar fyrir meltinguna. Þessar lækningajurtir draga úr uppþembu, ristilkrampa og eru verk- og vindeyðandi. Einnig eru þær allar bakteríu- og vírusdrepandi, taldar góðar gegn kvefi og örva blóðrásina. Kanill er líka talinn lækka blóðsykur, negull örvar minnið og bæði negull og kardimommur hafa lengi verið notaðar til að örva kynhvötina. Svart te er líka lækningajurt, ekki síður en grænt te, enda sama plantan. Það inniheldur m.a. andoxunarefni sem talin eru góð til varnar æðasjúkdómum og hrukkum.
Kryddte6-8 heilar kardimommur
5-6 negulnaglar
½-1 kanilstöng
4-6 svört piparkorn
4-6 sneiðar af ferskri engiferrót
hnífsoddur af rifinni múskathnetu
1-2 tsk svart te t.d. Earl Grey
1-2 tsk hunang
Kryddið er sett í pott ásamt 1 bolla (2 dl) af vatni. Látið sjóða með loki í ca ½-1 mín. Svörtu tei er bætt út í og látið sjóða í stutta stund. Síðan er 1 bolla af hrísmjólk bætt út í og suðan látin koma upp. Síað frá, hellt í könnu og hunangi bætt út í. Einnig er hægt að nota fjallagrös í staðin fyrir svart te en þá eru fjallagrösin sett út í með kryddinu í upphafi.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2012 | 16:32
Kjötsúpa grasalæknisins
Það er fátt betra á köldum vetrardegi en kraftmikil og saðsöm kjötsúpa. Ég hef í mörg ár eldað annars konar kjötsúpu en þessa hefðbundnu íslensku kjötsúpu. Mín kjötsúpa inniheldur að sjálfsögðu mikið magn af lækningajurtum, grænmeti og svo nokkra kjötbita. Ég hef mikla trú á forvarnargildi þess að neyta lækningajurta í mat og þessi kjötsúpa inniheldur kraftmiklar jurtir gegn kvefpestum og flensu. Flensan er í það minnsta sjaldgæf á mínu heimili hvort sem það er nú þessari súpu að þakka eða einhverju öðru. Ætihvönn, blóðberg, engifer, hvítlaukur og chili eru allt vel þekktar lækningajurtir. Þær eru allar hefðbundið notaðar gegn kvefi og flensu ásamt því að örva blóðrásina og því alveg tilvaldar þegar kalt er veðri.
Kjötsúpa grasalæknisins
1/2-1 púrrulaukur
6-8 hvítlauksrif
2 cm fersk engiferrót
½ ferskur rauður chili
½ sæt kartafla
1 haus brokkólí
1 msk grænmetiskraftur (Rapunzel)
2-3 lambalærisneiðar
2 msk þurrkuð hvannarblöð
1 msk blóðberg
2,3 L vatn
ólífuolía
salt og pipar eftir smekk
Púrrulaukur, hvítlaukur, sæt kartafla, engifer og chili er skorið smátt og léttsteikt í ólífuolíu í súpupottinum. Vatni og grænmetiskrafti er bætt út í og látið sjóða. Lambalærisneiðar eru skornar í litla bita og beinin látin út í pottinn. Bitarnir eru léttsteiktir í ólífuolíu á pönnu með salti og pipar og síðan bætt við í pottinn. Þurrkuðum og muldum hvannarblöðum er bætt út í og soðið í minnst 40 mínútur en helst í rúman klukkutíma. Þegar ca. 10 mínútur eru eftir af suðutíma er skornu brokkólí bætt út í.
Anna Rósa grasalæknir er með heimasíðuna www.annarosa.is og á facebook hérLífstíll | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2012 | 13:29
Ristilhreinsandi og vatnslosandi lækningajurtir
Meltingin er í stakasta ólagi hjá mörgum eftir hátíðarnar og auglýsingar um allskyns hreinsunarkúra tröllríða nú öllu. Flestir geta verið sammála um að fyrsta skrefið sé að borða hollan mat og hætta smáköku og nammiáti og góð hreyfing fylgir svo fast á hæla þess. Ég er auðvitað einlægur aðdáandi þess að nota lækningajurtir við öll möguleg og ómöguleg tækifæri og ristilhreinsandi jurtir hafa verið notaðar frá ómunatíð, enda eru grasalækningar elsta lækningaaðferð mannsins. Fjallagrös og túnfíflarót eru dæmi um lækningajurtir sem eru góðar fyrir meltinguna. Aukinn bjúgur er einnig algengur eftir stórhátíðir því ekki er nóg með að bæði saltur og reyktur matur hafi áhrif til hins verra heldur getur mikil sykurneysla líka aukið bjúg. Mjög margar lækningajurtir hafa vatnslosandi áhrif en dæmi um íslenskar jurtir sem hafa vatnslosandi áhrif eru túnfíflablöð, birki og brenninetla.
Fjallagrös eru sérstök að því leyti að þau innihalda bæði slímefni og beisk efni, sem er sjaldgæf samsetning í lækningajurtum. Þau þykja því sérstaklega góð við margskonar meltingarkvillum þar eð slímefnin græða og vernda slímhúð maga en beiskjuefnin styrkja og örva meltinguna. Fjallagrös þykja verka vel við brjóstsviða, magabólgum, ristilkrampa og hægðatregðu. Hægt er t.d. að drekka þau sem te, búa til fjallagrasamjólk eða setja þau út í hafragrautinn á morgnanna.
Túnfíflarót hefur örvandi áhrif á starfsemi lifrar og gallblöðru, enda hefur hún lengi verið talin góð við uppþembu, vindgangi og harðlífi. Hún hefur líka verið notuð til að styrkja lifrina eftir langvarandi lyfjatöku eða áfengisneyslu.
Túnfíflablöð hafa frá örófi alda þótt með bestu vatnslosandi jurtum sem völ er á. Það eru blöð túnfífilsins sem þykja mest vatnslosandi þótt einhver slík virkni sé líka í rótinni.
Brenninetla hefur verið vinsæl lækningajurt frá örófi alda en hún hefur ákaflega fjölbreytta verkun. Hún þykir hreinsandi og er mikið notuð innvortis við húðsjúkdómum og gegn gigtarsjúkdómum, einkum þar sem nýrnastarfsemin er léleg og mikil bjúgmyndun, enda er hún mjög vatnslosandi.
Birkilauf þykja mjög góð til lækninga, en þau eru vatnslosandi og hafa mikið verið notuð við gigtarsjúkdómum. Birkilauf eru einnig góð við blöðrubólgu og öðrum sýkingum í þvagrásarkerfi og eru auk þess notuð gegn nýrnasteinum og bjúg.
Vatnslosandi te2 msk þurrkuð túnfíflablöð eða brenninetlublöð
2 msk þurrkuð birkiblöð
Jurtirnar eru settar í 750ml hitabrúsa og sjóðandi vatni hellt yfir. Síið jurtirnar frá þegar hellt er í bolla en setjið þær svo aftur í hitabrúsann og látið liggja í allan daginn. Drekkið einn hitabrúsa á dag.
Hvar fæst þetta?
Birkiblöð, túnfíflablöð, fjallagrös og brenninetlu te er hægt að kaupa í lausu (ekki nota tepoka) og túnfíflarót (Dandelion root) í hylkjum í heilsubúðum og heilsuhornum stórmarkaða. Einnig fást sumar af þessum jurtum sem safar sem getur hentað sumum betur. Ég framleiði tinktúrurnar „Fjallagrös og fíflarót“ fyrir meltinguna og „Fíflablöð og birki“ sem er vatnslosandi undir vörumerkinu Anna Rósa grasalæknir en þær fást bæði í apótekum og heilsubúðum.
Anna Rósa grasalæknir er með heimasíðuna www.annarosa.is og á facebook hér
Heimildir: Bókin "Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir" sjá nánar hér
Lífstíll | Breytt 9.1.2012 kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

